
![]()
Eftir nákvæmlega sextíu mínútna eldamennsku voru átta glæsilegir réttir komnir á borð og dómararnir tóku til starfa. Eftir að hafa skoðað, smakkað, vegið og metið útlit og bragðgæði voru stigin talin og úrslitin voru ljós. Hæstu einkunn dómaranna fimm fékk Nætursaltaður Þorskhnakki í mandarínu og teriyaki með sítruskúskús en hann matreiddu þær Ásdís Heiðarsdóttir, Kristín Björk Smáradóttir, Birta Baldursdóttir og Ástrós Kristinsdóttir í tíunda bekk. Kjúklingasalat með foccaccia brauði þeirra Berglindar og Rúnu lenti í öðru sæti og Stökksteikt Bleikja "Melba" framreidd með blaðlauk, eplum og fenniku í kremaðri dill-saffran sósu skilaði Guðmundi, Hjörleifi, Óla og Svenna í þriðja sætið. Hérna eru uppskriftir og myndir af öllum réttunum og hér má finna fleiri myndir úr keppninni sjálfri.
Fjölmiðlar mættu á staðinn, þeirra á meðal Ríkissjónvarpið og Morgunblaðið. <<< Smellið á til að skoða.